Tilvísun í mál: FRN19070108
Komið þið sæl,
Gæða- og eftirlitsstofnun félagsþjónustu
og barnaverndar sinnir eftirliti fyrir hönd ráðherra með framkvæmd laga
um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/ 1991, sbr. 3. gr. laganna, og laga
um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018,
sbr. 4. gr. laganna.
Að gefnu tilefni bendir Gæða- og
eftirlitsstofnun félagsþjónustu og barnaverndar á mikilvægi þess að til
staðar séu verklagsreglur hjá sveitarfélögum sem taka til alvarlegra atvika
í þjónustu við fatlað fólk. Slíkar reglur auka ekki einungis traust á þeirri
þjónustu sem verið er að veita heldur tryggja einnig að skráning upplýsinga
og gagna sé rétt og í samræmi við gildandi lög og reglur. Verklagsreglur
sem taka til alvarlegra atvika í þjónustu við fatlað fólk er ráðstöfun
í skilningi 16. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks
en þar segir:
Aðildarríkin skulu gera allar
viðeigandi ráðstafanir á sviði löggjafar, stjórnsýslu, félags-
og menntamála og aðrar ráðstafanir í því skyni að vernda fatlað fólk, jafnt
innan heimilis sem utan, fyrir hvers kyns misnotkun í gróðaskyni, ofbeldi
og misþyrmingum, meðal annars með hliðsjón af kynbundnum þáttum slíkra
athafna.
Bestu kveðjur,
Theódóra
| Theódóra
Sigurðardóttir, lögfræðingur / Legal Advisor
Gæða- og eftirlitsstofnun félagsþjónustu og barnaverndar / Care Quality
Inspectorate for social services and child protection
Skógarhlíð 6, 105 Reykjavík, Iceland
Sími / Tel: (+354) 545 8100
www.stjornarradid.is
- Fyrirvari/Disclaimer
|
Vinsamlegast hugið að umhverfinu áður en tölvupósturinn er prentaður /
Please consider the environment before printing
|